Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump ýjar að einhverskonar aðgerðum gegn Kúbu

Donald Trump Bandaríkjaforseti ýjar að því að gripið verði til einhvers konar aðgerða gegn Kúbu þegar hernaðaraðgerðum linnir í Íran. „Við ætlum að klára þetta fyrst, en það er bara tímaspursmál hvenær þið og fleira frábært fólk getið heimsótt Kúbu aftur,“ sagði Donald Trump í ræðu við móttöku í Hvíta húsinu. Hann sagði utanríkisráðherrann Marco Rubio hafa staðið sig sérstaklega vel gagnvart Kúbu en ráðherrann er sonur kúbverskra innflytjenda. Hvorugur hefur farið í grafgötur með áhuga sinn á stjórnarskiptum í landinu. Þrátt fyrir að almenningur á Kúbu sé tekinn að gagnrýna stjórnarhætti kommúnistastjórnarinnar hástöfum óttast margir hernaðarafskipti Bandaríkjanna, ekki síst vegna mikils þunga árásanna á Íran þar sem æðsti klerkurinn Ali Khamenei var drepinn. Engin olía hefur verið flutt t
Trump ýjar að einhverskonar aðgerðum gegn Kúbu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta