Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Barnasekt“ hafi áhrif á mæður á vinnumarkaði

Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur hjá BHM, segir barneignir geta haft umtalsverð áhrif á tekjuþróun og atvinnuþátttöku mæðra á vinnumarkaði.Hún nefnir í því samhengi eins konar „barnasekt“ og vísar þar með til þess þegar atvinnuþátttaka og tekjur kvenna lækka í kjölfar fyrstu barneigna. Sú þróun hafi bæði áhrif á konur og vinnumarkaðinn í stærra samhengi.„Við sjáum að atvinnuþátttaka kvenna lækkar um 20% við fyrstu barneign og þetta nær ekki aftur sama stigi fyrr en mörgum árum síðar,“ segir Sigrún sem var á meðal viðmælenda í Kastljósþætti kvöldsins.
„Barnasekt“ hafi áhrif á mæður á vinnumarkaði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta