Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Yfirmaður heraflans: Yfir 30 írönskum herskipum sökkt

Bandaríkjamenn segjast hafa sökkt yfir þrjátíu írönskum skipum frá upphafi stríðsins fyrir tæpri viku. Aðmírállinn Brad Cooper, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, greindi frá þessu í kvöld og sagði að fyrr í dag hefði herinn gert árás á drónamóðurskip sem standi í ljósum logum.Cooper segir jafnframt að verulega hafi dregið úr eldflauga- og drónaárásum Írana á nágrannalöndin, jafnvel um áttatíu til níutíu af hundraði. Yfirlýst markmið Bandaríkjanna í fyrsta áfanga stríðsins segir Cooper vera að stöðva eldflaugaframleiðslu Írana og tortíma sjóhernum.
Yfirmaður heraflans: Yfir 30 írönskum herskipum sökkt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta