Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Versnandi efnahagskrísa á Kúbu og víðtækt rafmagnsleysi

Truflanir á rafmagni hafa verið tíðar á Kúbu síðustu ár. Í vikunni hefur verið víðtækt rafmagnsleysi, meðal annars í höfuðborginni Havana. Stjórnvöld segja viðgerð geta tekið allt að fjóra daga.Fólk matreiðir yfir opnum eldi og ekki er hægt að geyma mat í kæli.Í ofanálag hefur Bandaríkjastjórn hótað hækkuðum tollum á öll ríki sem útvega Kúbu olíu og kominn er skortur. Sorpbílar eru því ekki á ferðinni og ruslið safnast upp. Strætisvagnar ekki heldur, né flugvélar og tekjur af ferðamönnum hafa hríðfallið. Stjórnvöld í Mexíkó hafa síðustu daga sent neyðarvistir því skortur er á mat. Honum var dreift til aldraðra í vikunni.„Þetta er versta efnahagskrísa sem við höfum nokkurn tíma upplifað, í það minnsta á einræðistímanum,“ segir blaðamaðurinn Camila Acosta.Rafmagnslaust hefur verið á stórum h
Versnandi efnahagskrísa á Kúbu og víðtækt rafmagnsleysi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta