Stöðvarskylda leigubílstjóra hefur verið endurvakin með lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi í dag. Koma allir bílstjórar til með að þurfa að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gilt starfsleyfi og verður stöðvunum skylt að skrá allar ferðir, upphafs- og endastöð þeirra, staðsetningu bifreiðar, akstursleið og greiðslur farþega.