Lögfræðingurinn María Ellen Steingrímsdóttir leiðir lista Viðreisnar í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.Uppstillingarnefnd kynnti listann í heild sinni á fundi flokksins í Kópavogi í kvöld.Annað sæti listans skipar Pétur Björgvin Sveinsson, varaþingmaður og starfsmaður þingflokks Viðreisnar, en hið þriðja vermir Arnar Grétarsson, knattspyrnuþjálfari og viðskiptafræðingur. Í fjórða sæti er Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, skólastjóri Hörðuvallaskóla. VONAST TIL ÞESS AÐ LISTINN VEKI ATHYGLI BÆJARBÚA María Ellen, nýkjörinn oddviti Viðreisnar í Kópavogi, kveðst þakklát fyrir allt það fólk sem sóst hafi eftir sæti á listanum að þessu sinni.„Ég hef fulla trú á því að nýr listi Viðreisnar í Kópavogi muni vekja athygli bæjarbúa og við hlökkum mikið til að kynna nýja stefnu sem hönnuð