Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Besta fiskinn og franskarnar utan Bretlandseyja að finna í Mývatnssveit

Besti fiskurinn og franskarnar utan Bretlandseyja er á boðstólum á litlu veitingahúsi við Mývatn. Að þessari niðurstöðu komust dómarar alþjóðlegrar fiskréttakeppni í Lundúnum á dögunum.„Við vissum ekkert hvað við vorum að fara að gera, við höfðum aldrei rekið veitingastað. Þannig þetta er bara frábært, og verður ekkert mikið betra,“ segir Haukur Eiðsson, einn eigenda fjölskyldufyrirtækisins Fish and Chips Lake Mývatn, þegar sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum blésu til fögnuðar þeim til heiðurs á Sjóminjasafninu á Húsavík í gær.Þrjár fjölskyldur opnuðu saman litla veitingahúsið í Reykjahlíð árið 2022, sem hafði þá verið draumur í mörg ár.„Allir karlmennirnir í hópnum eru sjómenn í grunninn og þeir hafa rosalega sterkar skoðanir á því hvernig fiskurinn á að vera, mjög miklar skoðanir á því og
Besta fiskinn og franskarnar utan Bretlandseyja að finna í Mývatnssveit

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta