Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Læknir frá Úkraínu fær bara þjónustustarf

Úkraínsk kona, sem starfaði sem læknir í heimalandinu fyrir innrás Rússa, hefur ekki fengið vinnu í samræmi við menntun hér á landi. Hún tók stöðupróf í Háskóla Íslands og fékk læknaleyfi í fyrra.Skessuhorn sagði fyrst frá.Daria Peremot fluttist til Íslands eftir innrás Rússa í Úkraínu. Hún er menntaður háls-, nef- og eyrnalæknir en fær ekki vinnu sem slíkur á Íslandi. „Ég vann á stórum spítala í Kharkiv í meira en tíu ár,“ segir Daria. „Síðasta vaktin mín var 23. febrúar, daginn áður en stríðið hófst.“Daria flýði með son sinn sem þá var átta ára og kom til Íslands. „Þegar maður kemur úr sprengingum, flugskeytahríð og öllu því var Ísland auðvitað paradís líkast,“ segir Daria.Þegar hún kom til Íslands kunni hún litla ensku og enga íslensku en er að læra hvort tveggja. Hún segir erfitt að læ
Læknir frá Úkraínu fær bara þjónustustarf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta