Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna meiriháttar líkamsárásar

Tveir fjögurra manna sem hafa verið í haldi lögreglu, grunaðir um alvarlega líkamsárás í íbúð í miðborg Reykjavíkur í gær, hafa verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Hinum tveimur hefur verið sleppt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Tilkynning um meiriháttar líkamsárás barst lögreglu um miðnætti í gærkvöld. Sá sem varð fyrir árásinni er karlmaður á fertugsaldri. Hann var fluttur á slysadeild með talsverða áverka en hefur verið útskrifaður.
Tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna meiriháttar líkamsárásar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta