Ályktun Læknafélagsins til velferðarnefndar Alþingis var nefnd í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun af Ingu Sæland sem flutti frumvarpið, þá félagsmálaráðherra, um tengingu bóta almannatryggingakerfisins við launavísitölu:„Ég er búin að fá hálfgert ógeð í orðsins fyllstu merkingu á því að hlusta á hverja silkihúfuna á fætur annarri hér úti í samfélaginu og nú nýjast Læknafélag Íslands. Þeir sem að meta fólkið til örorku. Þeir sem sennilega eru með meðaltal sex milljónir á mánuði í laun,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra.Aðspurð segir Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands ekki vita um neinn lækni sem er með sex milljóna króna mánaðarlaun.Formenn Læknafélagsins og Öryrkjabandalagsing greinir á um áhrif tengingar örorkubóta við launavísitölu. Stjórn Læk