Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fá betri gögn um ferðamannastaði með nýjum teljurum

Ferðamálastofa vinnur að því að endurnýja alla teljara og tæknibúnað sem notaður er við talningu gesta á fjölmennustu áfangastöðum landsins. Í heildina nær verkefnið til um 40 áfangastaða. Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri segir talningarnar veita gríðarlega mikilvægar upplýsingar.„Vegna þess að þarna getum við séð nokkurn veginn í beinni hvernig þróunin er. Þar af leiðandi getum við tekið nokkuð upplýstar ákvarðanir um uppbyggingu á áfangastöðum – um skipulag og þjónustu og ekki síst getum við verndað þá fyrir álagi og bætt í innviði til að ráða við þann fjölda sem við erum að sjá.“Búnaðurinn telur ferðamenn með geislum, en Arnar segir að ný tækni sé að ryðja sér til rúms þar sem notast er við myndavélar.„Það er miklu nákvæmara og við erum að setja upp slíka teljara við Geysi og Gullfoss
Fá betri gögn um ferðamannastaði með nýjum teljurum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta