Utanríkisráðherra kynnir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu á fundi ríkisstjórnar á morgun. Beint á eftir fundi verður haldinn blaðamannafundur þar sem efnisatriði tillögunnar verða kynnt frekar og þar með dagsetning atkvæðagreiðslunnar.