Utanríkisráðherra mun kynna þingsályktunartillögu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið á ríkisstjórnarfundi í fyrramálið og verður tillagan að óbreyttu lögð fram á þingi í næstu viku.Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fari fram eigi síðar en 2027. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði í viðtali við RÚV í byrjun árs að tillagan yrði lögð fram á vorþingi.Samkvæmt heimildum fréttastofu er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslan verði síðsumars eða snemma í haust, líklegast seinni partinn í september. Samkvæmt lögum á þjóðaratkvæðagreiðsla að fara fram í fyrsta lagi þremur mánuðum eftir að Alþingi samþykkir tillögu þess efnis og í síðasta lagi einu ári.Áætluð þinglok eru í jú