Mikill sjógangur var í Reynisfjöru í febrúar sem breytti ásýnd fjörunnar til muna. Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, ein af landeigendum í Reynisfjöru, segir ölduna hafa valdið miklum skemmdum.„Aldan gróf eiginlega í burtu útsýnispallinn og undirstöðurnar undir honum. Og tvö meginskiltin um hætturnar í fjörunni voru á útsýnispallinum. Við náðum að bjarga ljósaskiltinu inn en hitt skiltið fór áður en við náðum að bjarga því inn.“Ragnhildur segir sandinn farinn að safnast upp á ný í fjörunni. Kambur hafi þó myndast niður í fjöruna og ekki sé hægt að komast í svokallaðan Hálsanefshelli. 9 ára þýsk stúlka drukknaði síðastliðið sumar eftir að hún festist í hellinum vegna sjógangs.„Eins og þetta er núna þá er einmitt minni hætta á því að fólk fari sér á voða því það er ekki að fara að taka einhverja