Í Reykholti búa 370 manns. Þegar mikið liggur við eru dyrnar á félagsheimilinu Aratungu opnaðar og oftast er það kvenfélagið sem sér um bakkelsið og kaffið. Þetta er friðsæll byggðakjarni sem ferðamenn heimsækja eftir að hafa skoðað Gullfoss og Geysi; þarna eru Friðheimar; heimsfrægir eftir heimsókn Kardashian-fjölskyldunnar, Bjarnabúð, Vínstofan og veitingastaðurinn Mika. Grænmeti, kryddjurtir og jarðarber eru ræktuð í gróðurhúsum og bjáti eitthvað á réttir næsti maður fram hjálparhönd.Þetta kyrrðarsamfélag hefur samt verið í hálfgerðu áfalli eftir að sextugum palestínskum karlmanni með maltneskt ríkisfang var haldið föngnum á heimili sínu í þrjá sólarhringa, hann beittur miklu harðræði og ævisparnaði hans rænt. Hann verður hér eftir kallaður Maltverjinn til að einfalda frásögnina. ÁTTI