Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir ráðamenn í Mið-Austurlöndum, Evrópu og Bandaríkjunum hafa leitað ráða hjá Úkraínumönnum um hvernig best sé að stöðva íranska sjálfsprengidróna. Íranar hafa notað gífurlegan fjölda slíkra dróna til árása á nágranna sína síðustu daga sem hafa notað mjög dýr flugskeyti til að stöðva þá.