Þingmaður Sjálfstæðisflokksins kallar eftir frekari upplýsingum og rökstuðningi fyrir því að tvö þúsund manns hafi verið vísað frá þjónustu geðheilsuteyma Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.Frá árinu 2020 hefur alls 1.997 einstaklingum verið synjað um þjónustu hjá geðheilsuteymum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Það jafngildir rúmlega fjörutíu prósentum af öllum sem var vísað til teymisins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.„Þetta er fólk sem hefur haft tilvísanir frá læknum og öðru fagfólki en þegar það kemur á heilsugæslustöðina og vill fá aðstoð þá hefur því verið vísað frá. Nú er komið að því að spyrja hvað varð um þetta fólk og á hvaða forsendum var því vísað frá,“ segir Rósa.Fré