Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir óviðunandi og óþolandi að að þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir tefjist um mörg ár vegna ágreinings við landeigendur. Hann boðar einfaldar en róttækar breytingar á raforkulögum. FELLA BURT KRÖFU UM SAMKOMULAG EÐA EIGNANÁM VIÐ LANDEIGENDUR „Við ætlum að fella burt kröfuna um að samkomulag hafi náðst eða eignarnám farið fram áður en framkvæmdir hefjast. Við ætlum að afnema þessa kröfu. Við verjum eignarréttindi landeigenda með eignarnámsbótum, ekki með því að gefa þeim einhvers konar neitunarvald gegn þjóðhagslegum framkvæmdum.“Þetta sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, á Iðnþingi sem Samtök iðnaðarins stóðu fyrir í dag.Hann segir að þessi nýju lagaáform þýði að framkvæmdir geti hafist samhliða samningaviðræðum