Betur fór en á horfðist þegar 19 ára manni var ýtt í veg fyrir léttlest við brautarstöð í Mörke á Austur-Jótlandi í gærkvöld.Í frétt DR segir að manninum hafi verið ýtt út á teinana rétt áður en lestin kom. Hann náði að forða sér aftur upp á brautarpallinn í tæka tíð.Lögregla leitar enn árásarmannsins sem er lýst sem grannvöxnum manni með norrænt útlit.Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps.Frá brautarstöðinni í Mørke.Mynd / DR