Fjörutíu og eins árs karlmaður greindist nýlega á Landspítalanum með berkla í endaþarmsopi en ekki er vitað hvernig hann smitaðist. Hann starfar ekki í þannig umhverfi að hann ætti að vera útsettur fyrir berklum og ferðalög hans erlendis voru ekki þess eðlis að hann hefði átt að vera í aukinni hættu á útsetningu.