Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Þetta í tuttugusta sinn sem Fjöruverðlaunin eru veitt og í ellefta sinn síðan borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna. Heiða Björg Hilmisdóttir bauð gesti velkomna. Verðlaunahafar fengu verðlaunagripi eftir listakonuna Koggu.Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum: fagurbókmenntir, fræðibækur og rit almenns eðlis og barna- og unglingabókmenntir.Verðlaunahafar eru: Í FLOKKI FAGURBÓKMENNTA: HVALBAK EFTIR MAÓ ALHEIMSDÓTTUR > „Hvalbak eftir Maó Alheimsdóttur er ljóðrænn óður til lands og tungu. Ljóðin hverfast um tengsl ljóðmælanda við náttúruna og þá einkum jökulinn sem býr í senn yfir fegurð og hrikaleika. Dregnar eru upp áhrifaríkar myndir af síbreyt