Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Yfirvöld ekki staðið sig í gerð gagnagrunns um hatursglæpi

Íslensk yfirvöld þurfa að spýta í lófana við gerð gagnagrunns um hatursorðræðu og hatursglæpi hér á landi að mati Evrópunefndar gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi, ECRI. Nefndin birti í dag eftirlitsskýrslu um innleiðingu Íslands, Lúxemborgar, Norður-Makedóníu og Póllands á tilmælum sem hún gaf út 2023.Nefndin segir það jákvætt að Ísland hafi bætt þjálfun lögregluþjóna og saksóknara er snýr að greiningu og skrásetningu hatursglæpa. Aftur á móti hafi lítið áunnist í gerð áðurnefnds gagnagrunns sem eigi að innihalda upplýsingar um hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og gagnvart hinsegin fólki.Að mati nefndarinnar eigi yfirgripsmikill gagnagrunnur sem geymir upplýsingar um rannsóknir, ákærur og sakfellingar í málum tengdum hatursglæpum að vera til staðar og opinn almenning
Yfirvöld ekki staðið sig í gerð gagnagrunns um hatursglæpi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta