Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Húsleitir hjá Lyfjum & heilsu og SKEL dæmdar lögmætar

EFTA-dómstóllinn hafnaði í dag kröfu Tosku ehf. og Lyf og heilsu hf. (Toska) og SKEL fjárfestingafélags hf. um ógildingu á ákvörðunum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um framkvæmd húsleitar hjá félögunum.Húsleitir voru gerðar í október 2024, í tengslum við rannsókn ESA á meintum samkeppnisbrotum Tosku og SKEL á smásölumarkaði með lyf hér á landi.Félögin töldu að ákvarðanir um húsleit væru ekki nægilega rökstuddar og að ekki væru fyrir hendi nægilegar vísbendingar um brot. Félögin töldu einnig að engin áhrif hefðu orðið á viðskipti milli EES-ríkja og að ESA hefði ekki haft lögsögu til að rannsaka meint brot, þar sem háttsemi fyrirtækjanna hefði þegar verið heimiluð samkvæmt íslenskum lögum í kjölfar samrunarannsóknar Samkeppniseftirlitsins. Toska hélt því einnig fram að rannsóknin bryti gegn r
Húsleitir hjá Lyfjum & heilsu og SKEL dæmdar lögmætar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta