Bráðamóttaka Landspítalans er yfirfull og hefur ástandið aldrei verið verra að mati starfsfólks.Átta starfsmenn greindust með berklasmit í byrjun árs og í febrúar sendu stjórnendur spítalans Ölmu Möller heilbrigðisráðherra minnisblað um hversu alvarleg staðan væri orðin. Í minnisblaðinu óskuðu starfsmenn bráðamóttöku eftir því að 40-50 sjúklingar yrðu færðir annað.Alma Möller segir ljóst að staðan sé slæm og vandinn langstæður, því taki tíma að vinda ofan af hlutunum.Síðan 13. febrúar hafa 50 aldraðir einstaklingar verið útskrifaðir af bráðamóttöku Landspítalans. Alma segir það þó ekki duga til vegna þess að fólk sem þarf á hjúkrunarrýmum að halda bætist sífellt við á bráðamóttöku.Heilbrigðisráðherra segir að stefnt sé á að opna 100 hjúkrunarými í Urðarhvarfi eftir tvær vikur. Ófremdarásta