Allt að þriggja mánaða bið er eftir aðstoð átröskunarteymis Landspítala, þangað sem fleiri leita með alvarlegri vanda en áður. Tæplega 60 tilvísanir bárust teyminu í fyrra.„Málin eru þyngri. Það eru hröð veikindi, hratt versnandi vandi. Mikið þyngdartap á stuttum tíma,“ segir Karen Daðadóttir, teymisstjóri í átröskunarteyminu á Barna og unglingageðdeild Landspítala.Hún segir að fyrir nokkrum árum síðan hafi fólk komið til teymisins sem hafi glímt við átröskunarvanda í nokkurn tíma. „Við sjáum núna að á 3 mánuðum er vandinn orðinn rosalega stór og mikill og yfirþyrmandi fyrir fjölskyldurnar og það þarf að grípa hratt inn í,“ segir Karen. 56 TILVÍSANIR Í FYRRA „Og með auknu álagi á teymið myndast meiri bið eftir þjónustunni sem er ekki gagnlegt þannig við erum að reyna að vinna í því,“ bæ