Stór hópur einhverfra er fastur í viðjum vanvirkni og óskýrar kröfur á vinnumarkaði geta reynst þeim útilokandi. Ung kona sér eftir úrræðinu Janusi endurhæfingu, sem reyndist henni vel, en var lokað síðasta sumar. EINANGRUÐ, ÞUNGLYND OG MEÐ MIKINN KVÍÐA „Þetta var úrræði sem bjargaði mér. Fólkið sem var að vinna þarna skildi alveg hvað var í gangi og þau vissu að þetta var erfitt fyrir okkur,“ segir Sigrún Ósk Bergmann.Sigrún Ósk var komin í algjöra vanvirkni árið 2023. Hún var hvorki í vinnu né námi og farin að eiga erfitt með að takast á við daglegt líf. Það tók að halla verulega undan fæti hjá henni á Covid-tímabilinu.„Ég var bara mjög einangruð, í miklu þunglyndi og með mikinn kvíða við bara að fara út úr húsi.“En í byrjun árs 2024 komst hún að í Janusi endurhæfingu, geðmeðferðarúrr