Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir hlaut verðlaun Hagþenkis, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, fyrir útgáfu árið 2023. Verðlaunin hlaut hún fyrir ritið Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Bókin er gefin út af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og ritstjóri var Haukur Þorgeirsson.Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í dag. Valgerður segir að rímurnar af Mábil sterku opni glugga til fortíðar sem séu ekki svo ólíkir nútímanum.„Þær segja sögu af kynjamisrétti, græðgi og siðleysi og líklega eru þær ortar sem níð um einhverja konu eða konur en á nútímamáli heitir það einelti.“Hún segir það mikinn heiður að hafa hlotið verðlaunin og að fá nafn sitt skráð með þeim sem áður hafa hlotið viðurkenninguna.Valgerður rekur ferðaþjónustu á Leirubakka í Rángá