Olíuverð á heimsmörkuðum hefur farið hækkandi frá því Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran. Miklar sveiflur hafa verið markaði og óvissan mikil. Magnús Hafliðason framkvæmdastjóri N1 segir áhrifanna þegar byrjað að gæta hér á landi.„Við höfum verið að hækka verð síðustu tvo daga. Eingöngu vegna þessa. En við höfum haft þá reglu að við reynum að leiða þetta út jafnt og þétt. Minni breytingar oftar í báðar áttir. Vonandi gengur þetta til baka og við getum lækkað verðið til baka þegar markaðir lækka,“ segir Magnús. „Þetta hafa verið svona fimm til sjö krónur aðeins eftir tegundum núna á síðustu tveimur dögum,“ segir Magnús.Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu hækkaði upp í 77 dollara á tunnu þegar Bandaríkjamenn gerðu gerðu loftárásir á kjarnorkuinnviði Írans í fyrra. Verð fór síðan l