Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bora eftir heitu vatni í Geldinganesi

Veitur ætla að bora eftir heitu vatni á Geldinganesi í Reykjavík sem er 220 hektarar að flatarmáli. Byrjað verður að bora síðar í mars.Við boranir á Geldinganesi á tíunda áratug síðustu aldar fannst 90 til 100 stiga heitt jarðhitakerfi. Holurnar, sem þá voru boraðar, gáfu ekki nægilega mikið vatn. Veitur ætla að nú að bora holur sem verða allt að einn og hálfur kílómetri að dýpt. Markmiðið er að finna betri lekt, eins og kallað er, svo nýta megi jarðhitakerfið fyrir hitaveitu. FRAMKVÆMDIR FYRIR BORHOLUR EKKI SUNDABRAUT Síðustu vikur hafa íbúar í Grafarvogi nærri Geldinganesi orðið varir við nær stöðuga umferð vörubíla yfir eiðið í Geldinganes. Ekki var verið að undirbúa lagningu Sundabrautar heldur var verið að flytja möl til að styrkja veginn þvert yfir nesið og útbúa borplan sem nú er
Bora eftir heitu vatni í Geldinganesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta