Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögregla kannar ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að taka ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar til skoðunar og meta hvort tilefni sé til að hefja frumkvæðisathugun. Dómsmálaráðherra hefur beðið skrifstofu jafnréttismála að gera úttekt á umfangi bælingarmeðferðar sem allsherjar-og menntamálanefnd mæltist til að yrði gerð fyrir þremur árum. SAMKYNHNEIGÐ LITIN HORNAUGA Ummæli Jakobs Rollands, kaþólska kanslarans á Íslandi, í útvarpsþættinum Meiningu á Rás 1 um hinsegin fólk og viðhorf kaþólsku kirkjunnar til þeirra ættu ekki að koma neinum á óvart.Afstaða kaþólsku kirkjunnar hefur legið fyrir og ólíklegt að hún eigi eftir að breytast; sama hver páfinn er í Róm.Í kaþólskri trú er hjónaband karls og konu eitt af sjö sakramentum kirkjunnar, sem eru hin helga arfleið frá Guði, eins og það er orðað á vef kaþ
Lögregla kannar ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta