Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir læknisvottorð vegna skammtímaveikinda sóun á tíma heilbrigðisstarfsfólks. Tími sé kominn til að vinnuveitendur og skólar hætti að kalla eftir slíkum vottorðum þar sem þau hafi engan læknisfræðilegan tilgang.Hátt í 50 þúsund vottorð og rafrænar staðfestingar á skammtímaveikindum voru gefin út á síðasta ári. SKAMMTÍMAVOTTORÐ HAFI ENGAN LÆKNISFRÆÐILEGAN TILGANG Hátt í fimmtíu þúsund vottorð og rafrænar staðfestingar á skammtímaveikindum námsmanna og launafólks voru gefin út á síðasta ári.Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir útgáfu slíkra vottorða sóun á tíma heilbrigðisstarfsfólks. Þau hafi engan læknisfræðilegan tilgang og tími sé kominn að vinnuveitendur og skólar hætti að kalla eftir slíkum vottorð