Borgarfulltrúarnir Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um tillögu Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðismanna í Reykjavík, á borgarstjórnarfundi í gær. Tillagan fól í sér að hefja viðræður við ráðherra og bæjarstjóra nágrannasveitarfélaga um fjármögnun samgöngusáttmálans og endurskoðun ákvæða hans.Kjartan segir að þau Marta hafi talið eðlilegra að í tillögunni yrði tekin eindregin afstaða gegn borgarlínu. Í bókun þeirra var lagt til að áhersla yrði lögð á að efla núverandi strætisvagnakerfi í stað þess að ráðast í gerð borgarlínu. STÓR FLOKKUR SEM RÚMI MARGAR SKOÐANIR Kjartan segir varla hægt að tala um klofning innan borgarstjórnarflokksins.„Hins vegar voru það ákveðin vonbrigði að aðrir borgarfulltrúar flokksins voru ekki tilbúnir til að stand