„Næsta hálfa öldin verður tímabil kjarnorkuvopna,“ sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti í ræðu sem hann flutti á mánudag. Ræðuna flutti hann á aðalkafbátastöð franska flotans, heimahöfn þeirra kafbáta sem búnir eru stýriflaugum sem borið geta kjarnaodda. „Ef við ætlum að vera frjáls,“ sagði forsetinn, „þá þurfum við að vera ógnvekjandi.“Og vænlegasta leiðin til þess, samkvæmt honum, er að uppfæra og stækka kjarnorkuvopnabúr landsins og útvíkka „fælingarhlíf“ franskra kjarnorkuvopna þannig að hún nái einnig yfir helstu bandalagsríki Frakklands - en þó algjörlega á forsendum Frakka.Fjallað var um þetta í Speglinum á þriðjudag. Hlusta má á þá umfjöllun í spilaranum hér fyrir neðan eða lesa áfram þar fyrir neðan.Frakkar hyggjast stækka kjarnorkuvopnabúr sitt í fyrsta skipti í áratugi. Frakk