Sigurbjörn Leifur Þrastarson, sem starfar sem kennari í flugvirkjun í Barein, hefur reynt að komast burt frá landinu eftir að átök hófust í Mið-Austurlöndum um helgina.Hann gagnrýnir viðbrögð íslenskra stjórnvalda og borgaraþjónustunnar sem hann segir að hafi gert lítið til þess að aðstoða hann við að komast aftur til Íslands. Hann segist eiga von á því að koma til Íslands á föstudaginn eða á laugardagsmorgun með hjálp frá vinnuveitanda.„Ég virðist vera á leiðinni í burtu héðan,“ segir Sigurbjörn sem segist að endingu hafa náð að bóka sig í flug með hjálp frá konunglega flugfélaginu í Barein sem hann starfar fyrir.„Ég bað þá um aðstoð eftir að ég komst að því að íslensk stjórnvöld voru með brækurnar niður um sig,“ segir hann.Til þess að komast aftur heim þarf hann að komast til Riyadh, höf