Ákæran á hendur fólkinu verður þingfest í Héraðsdómi Suðurlands eftir tæpan hálfan mánuð; þremur af sakborningunum sex eru sagðir hafa ruðst inn á heimili mannsins, bundið hendur hans saman með strigalímbandi og veist að honum með margháttuðu ofbeldi. Fórnarlambinu, sem er með maltneskt ríkisfang en af palestínskum ættum, tókst að komast undan þegar hann stóð fyrir utan bíl sem fólkið kom á en einn sakborninganna hljóp hann uppi og sparkaði hann niður. Manninum hafi síðan verið haldið föngnum á heimili sínu , honum hótað, ógnað með hníf og haglabyssu, og beittur grófu ofbeldi, allt í þeim tilgangi að fá upp hjá honum rafræn skilríki og upplýsingar um bankareikninga hans. Því var meðal annars hótað að siglt yrði með hann til Grænlands þar sem honum yrði hent úbyrðis. Þá er einn sakborningur