Frumvarp Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um afturköllun kvótasetningar á grásleppu var samþykkt á Alþingi í dag. Á næsta fiskveiðiári verða veiðar á grásleppu því aftur byggðar á sóknardögum, ekki kvóta.Sumarið 2024, fyrir síðustu alþingiskosningar, var samþykkt á Alþingi að grásleppuveiðum yrði stjórnað með kvóta. Fram að því höfðu sjómenn mátt veiða eins mikið og þeir vildu en aðeins í ákveðinn fjölda daga á ári.Kvótasetningin var umdeild, bæði á þingi og í sjávarútvegi. Þeir sem mótmæltu vísuðu til reynslunnar af kvótakerfinu og vöruðu við því að aflaheimildirnar myndu safnast á fárra hendur.Markmið laganna var að efla öryggi sjómanna og tryggja arðsemi. Rökin voru að kvótinn gerði sjómönnum kleift að haga veiðum eftir sinni hentisemi í stað þess að þurfa að sækja sjóinn á ákveðnu tímabili