jaymantri.com / jay mantri 2015Heimilt verður að hafa íslenska þjóðfánann við hún allan sólarhringinn frá fyrsta maí til 15. ágúst verði frumvarp stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að lögum.Í greinargerð með frumvarpinu segir að þrjú þingmál um fánann hafi komið fram á þessu þingi, sem eigi það sammerkt að flutningsmenn vilji auka notkun þjóðfánans á meðan gætt verði að virðingu hans.Í núgildandi lögum er tiltekið í reglugerð hve lengi megi halda fánanum við hún.Nefndin telur hins vegar að meginreglur um fánatíma ættu framvegis að vera tilteknar í lögum.Þá er líka bætt við ákvæði um að fáninn skuli vera óslitinn og með réttum litum þegar hann er við hún.