Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Samkomulag um ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja framlengt

Innviðaráðuneytið hefur framlengt samkomulag um ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja fram í miðjan mars. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu vegna stöðvunar á dýpkunarframkvæmdum í Landeyjahöfn.Stöðva þurfti dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn í upphafi vikunnar vegna bilunar í dýpkunarskipinu Álfsnesi. Í tilkynningu Vegagerðarinnar á mánudag sagði að unnið væri að því að fá varahluti erlendis frá og að viðgerð tæki 10 til 20 daga. Þangað til myndi Herjólfur sigla milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja.Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar hélt aukafund um dýpkunarmál í gær og fékk þær upplýsingar að lokið yrði við viðgerð í lok næstu viku.„Innviðaráðuneytið fylgist náið með stöðu mála vegna bilunar í dýpkunarskipinu Álfsnesi í Landeyjahöfn,“ segir í svari ráðuneytis
Samkomulag um ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja framlengt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta