„Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef gert en á sama tíma það sem hefur verið hvað mest gefandi,“ segir Hollywood leikkonan Lily Collins um það að ræða opinskátt um átröskun. Nú eru liðin tíu ár frá því að þessi Emily in Paris stjarna ræddi fyrst opinberlega um veikindi sín og hún segist aldrei sjá eftir því að hafa opnað umræðuna.