Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Enn eitt fyrirtækið orðað við Bakka – gagnaver, fiskeldi og nú rafeldsneyti

Fyrirtækið E-Valor hefur áhuga á því að framleiða rafeldsneyti á iðnaðarsvæðinu við Bakka á Húsavík. Ráðamenn í Norðurþingi undirrituðu með þeim viljayfirlýsingu á dögunum og er það fimmta fyrirtækið sem lýsir áhuga á að starfa á Bakka.Gíga 42, Bakkavík, Carbfix, Heidelberg og nú síðast E-Valor - þessi fyrirtæki hafa undirritað viljayfirlýsingar í Norðurþingi undanfarna mánuði. Öll segjast þau vilja kanna möguleikann á rekstri á Bakka norðan Húsavíkur, þar sem allt hefur legið í dvala eftir lokun kísilvers PCC síðasta sumar.E-Valor kannar möguleika á að framleiða þar allt að hundrað þúsund tonn af rafeldsneyti. Rafeldsneyti er heiti yfir efni sem má nota í stað jarðefnaeldsneytis, oftast byggt á vetni sem framleitt er með rafgreiningu, ferli sem krefst mikillar raforku. Vetnið er óhentugur
Enn eitt fyrirtækið orðað við Bakka – gagnaver, fiskeldi og nú rafeldsneyti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta