Grétar Mar Jónsson, varaþingmaður Flokks fólksins, baðst við upphaf þingfundar afsökunar á orðum sem hann lét falla í umræðum um afnám kvótasetningar grásleppu í gær.Greiða á atkvæði um frumvarpið á eftir en stjórnarandstaðan hefur gengið hart í gagnrýni sinni á það á meðan þingmenn Flokks fólksins hafa verið mjög áfram um að málið nái í gegn að ganga.Undir lok umræðunnar í gær færðist hiti í umræðuna og sakaði Grétar Mar stjórnarandstöðuna um að verja ríka fólkið og kvótakónga. Þá sagði hann að hagsmunasamtök í sjávarútvegi hafi haldið úti embætti í Háskóla Íslands til að þjóna sínum hagsmunum og því embætti hafi Helgi Áss Grétarsson, nú borgarfulltrúi, gegnt.Grétar Mar sagði við upphaf þingfundar að ummælin hafi fallið í hita leiksins. „Ég bið alla viðkomandi innilegrar velvirðingar á þe