Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á innköllun á leikföngum frá vörumerkinu Stretcherz.Leikföngin eru mjúk viðkomu, teygjanleg og innihalda fylliefni sem er sandur. Talið er mögulegt að varan sé heilsuspillandi þar sem grunur leikur á að fylliefnið geti verið mengað með asbesti.Um er að ræða eftirfarandi vörur: Stretch Super Heros 23 cm og 16 cm, Squard Dinos, Stretchy Slammerz og Stretch Squad XXL.Innkalla þarf fimm vörunúmer á Íslandi og hefur innflutningsfyrirtækið Danco hafið innköllun á eftirfarandi vörunúmerum:1350085 / 1350093 / 1351053 / 1376624 / 1376630Vörurnar voru seldar í ýmsum verslunum bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Leikföngin voru meðal annars til sölu í Bónus, Húsasmiðjunni, Samkaup, Nettó, Byko, Hans og Grétu og hugsanlega á fleiri stöðum.A