Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin mælast áfram stærstu flokkarnir í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup sem gerð var fyrir Viðskiptablaðið og birt var í dag.Báðir flokkar hafa þó tapað fylgi frá síðustu könnun.Samkvæmt könnuninni mælast flokkarnir hnífjafnir með 26,4% fylgi hvor um sig. Ef kosið yrði í dag fengju þeir því sjö fulltrúa hvor.Í janúar mældist fylgi Sjálfstæðisflokksins 32,7% og fylgi Samfylkingarinnar 29,4% í könnun Gallup. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur því dalað um 6,3 prósentustig frá síðustu mælingum og fylgi Samfylkingarinnar um þrjú prósentustig.Til samanburðar fékk Sjálfstæðisflokkurinn 24,5% atkvæða og sex borgarfulltrúa í borgarstjórnarkosningunum 2022, en Samfylkingin 20,3% og fimm borgarfulltrúa.Miðflokkurinn mælist næstur á eftir flokkunum tveimur í könnu