„Forseti Frakklands hefur átt frumkvæði að auknu samstarfi Evrópuríkja um kjarnorkuvopnavarnir og við erum tilbúin að ræða þessi mál,“ sagði Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs í árlegri ræðu sinni um utanríkismál í Stórþinginu í dag.Emmanuel Macron Frakklandsforseti tilkynnti í gær að átta Evrópuríki hefðu samþykkt að taka þátt í viðræðum um að styrkja fælingarmátt með kjarnavopnum Frakka. Eide staðfesti í dag að Frakkar hefðu haft samband við norsk stjórnvöld og þau væru tilbúin í viðræður, rétt eins og Danir og Svíar hafa sagt.Eide tók hins vegar fram að stefna norsku stjórnarinnar varðandi slík vopn hefði ekki breyst; á friðartímum stæði ekki til að leyfa þau á norskri grund.