Formanni stjórnar Viðreisnar í Reykjavík hefur verið vikið frá störfum. Hann hefur verið sakaður um fjárdrátt og er málið nú á borði lögreglu. Hann er sakaður um að hafa millifært fjórar til fimm milljónir króna úr sjóðum félagsins.Vísir greindi fyrst frá, en Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, staðfestir þetta jafnframt í samtali við fréttastofu RÚV.Að sögn Svanborgar komst upp um málið um helgina þegar farið var yfir ársreikning félagsins á síðasta ári. Þá uppgötvaðist misræmi í bókhaldi félagsins og þurfti í kjölfarið að fresta því að leggja reikninginn fram.Á formaðurinn, sem gengist hefur við brotunum, að hafa millifært fjórar til fimm milljónir króna á persónulega reikninga á tímabilinu 2024 til 2024. Svanborg segir viðkomandi þegar hafa endurgreitt stóran hluta fjár