Íslendingar sem eru strandaglópar í Miðausturlöndum vegna stríðsins þar gætu átt möguleika á að komast frá átakasvæðum með björgunarflugum á fimmtudag og föstudag.Um 140 Íslendingar eru á svæðinu. Borgaraþjónustan sendi í dag tölvupóst á fólk sem er á skrá til að benda á þrjú möguleg flug á vegum samstarfsríkja. * Amman í Jórdaníu til Bratislava í Slóvakíu þann 5. mars klukkan 15:00 að staðartíma. * Amman til Bratislava í Slóvakíu þann 6. mars (brottfarartími óstaðfestur). * Riyadh í Sádi Arabíu til Vínarborgar í Austurríki 5. mars klukkan 18:05 að staðartíma. Í póstinum segir að hafa eigi samband við borgaraþjónustuna til að lýsa yfir áhuga á sæti. Hún komi svo skilaboðum áleiðis til viðeigandi stjórnvalda.„Það er takmarkaður fjöldi sæta í boði fyrir ríkisborgara Evrópuríkja og fyrstu