Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi deiliskipulag sem felur í sér byggingu 15 smáhýsa við ströndina í Garðinum í Suðurnesjabæ. Þessi úrskurður var kveðinn upp þann 27. febrúar síðastliðinn. Í niðurstöðuhluta hans segir: ,,Felld er úr gildi ákvörðun bæjarráðs Suðurnesjabæjar frá 25. júní 2025 um að samþykkja deiliskipulag Gauksstaða (L196408) fyrir ferðaþjónustu.“Smáhýsin á að byggja í landi Gauksstaða en nokkrir nágrannar jarðarinnar eru ósáttir við framkvæmdirnar og vilja reyna að stöðva þær. Þess vegna kærðu þeir deiliskipulagsgerðina til úrskurðarnefndarnnar.Gísli Tryggvason er lögmaður hópsins og segir hann að deiliskipulagið um framkvæmdirnar sé fellt á því að það hafi ekki verið nægilega vel kynnt fyrir nágrönnum Gauksstaða. Hann segir að um sé að ræða full