Heilbrigðisráðherra segir í skoðun að gera viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn gjaldfrjálsa í upphafi meðferðar. Hún segist ekki geta svarað hvort til greina komi að þjónustan fari fram í apótekum, undir eftirliti lyfjafræðings. ALLTAF RUKKAÐ FYRIR LÆKNISVIÐTAL Í kvöldfréttum sjónvarps á sunnudag var rætt við konu sem hefur fengið viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn í fjögur ár. Hún segist óttast að nýtt gjald fyrir meðferðina, sem tók gildi um mánaðamót, verði til þess að færri nýta sér hana.Þá gagnrýndi hún aðgengi að meðferðinni sem fer fram á Vogi á Stórhöfða í Reykjavík. Hún segir marga eiga erfitt með að fara svo langa vegalengd og kallar eftir því að hægt verði að fá meðferðina á fleiri stöðum.Alma Möller, heilbrigðisráðherra, segir að alltaf hafi verið rukkað fyrir viðtal vegna viðhalds