Þingmenn stjórnarandstöðunnar stigu í ræðustól Alþingis í löngum röðum síðdegis til þess að gagnrýna að þriðja umræða grásleppufrumvarps Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur hefði verið sett á dagskrá þingfundar dagsins. Jón Gunnarsson sakaði þingmenn meiri hlutans um að horfa fram hjá lögbundnum skyldum sínum og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sagði það varhugaverða þróun að meiri hlutinn keyrði umdeild mál í gegn sem þingmannamál.