Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kvikusöfnun að nálgast hámark frá upphafi hrinunnar

Kvika hefur safnast undir Svartsengi í um 210 daga og haldi hún áfram má gera ráð fyrir að í næstu viku verði kvikumagn það mesta sem safnast hefur milli eldgosa frá upphafi hrinunnar. Þetta kemur fram í nýju hættumati Veðurstofu Íslands.Þar segir að innstreymi sé hægt en stöðugt, líkt og síðustu vikur.Mikið magn kviku og lengd kvikusöfnunartímabilsins kallar að mati Veðurstofunnar á frekari rýni um hver möguleg framvinda eldvirkninnar verður. Hún vinnur að endurskoðun sviðsmynda um mögulega framvindu og verða þær kynntar á næstu vikum.22,5 milljón rúmmetrar af kviku hafi safnast saman frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Langt goshlé sé ekki skýr vísbending um að eldgosahrinunni sé lokið. Líklegasta sviðsmyndin sé enn kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni.
Kvikusöfnun að nálgast hámark frá upphafi hrinunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta